Þann 26. júní var farið í langþráð sumarfrí til Portúgals. Hafði þetta sumarfrí verið í undirbúningi síðan um áramót, þegar stórfjölskyldan (Ármannsson) ákvað að fara saman í frí í sumar. Í fyrstu þurfti að velja tíma og stað sem allir gætu sætt sig við og með þeim þörfum sem svona hópur getur með góðu móti sameinast um. Þurfti því að hafa í huga smáfólkið, unglingana og eldra fólkið. Hafðist þetta allt að lokum og lagði tíu manna hópur af stað þann 26. júní. Í hópnum voru, Valdimar, Sigrún og börn (Hafsteinn, Kristján og Guðbjörg) auk þeirra voru Kristján afi, Guðbjörg amma, Pála, Eva og Árni. Leigðum við stórt einbýlishús, sannkallaða "villu", í smábænum Paderne sem liggur inn í landi um 15 km. frá Albufeira. Húsið okkar var með sundlaug, billiard-borði og frábærri sólbaðsaðstöðu.
Notuðum við næstu tvær vikurnar til að skoða nágrennið, fara í skoðunarferðir og sóla okkur í garðinum. Við fórum t.d. einn dag til Lissabon sem er um 2,5 klst. akstur, gaman að koma þangað og skoðuðum við kastalann og gengum um þröngar göturnar í miðbæðum.Zoo marine var einn af hápunktunum þar sem Guðbjörg fékk að fara í laugina hjá höfrungunum. Vatnsrennibrautagarðurinn Aqualand var einnig skemmtilegur og flest tekið með trukki þar. Húsbóndinn lét samt ekki leiða sig á glapstigu með þvi að fara í hæstu brautina. Strendur voru kannaðar, farið á jet-ski og hjólabát og gert vel við alla í mat og drykk. Mjög skemmtilegt frí með skemmtilegu fólki. Innan skamms má lesa almennilega hér almennilega ferðasögu

No comments:
Post a Comment